Í Bohm gagnræðum er notast er við ákveðna tækni sem skapar frjálst flæði hugsana og einblínt er á hvernig við skynjum tilfinningar með því að hlusta á okkur sjálf og aðra. Í gagnræðum skapast umhverfi þar sem hverjum og einum gefst kostur á því að tjá sig beint út frá hjartanu, burt séð frá því í hvernig umhverfi hann hefur mótast eða hvaða þekkingu hann hefur til að bera.
Í Bohm gagnræðum tökum við ýmis málefni fyrir eins og; frelsi, ást, hamingju og annað sem tengist okkur og umhverfinu. Sá sem leiðir ferlið kýs umræðuefnið hverju sinni .
Bohm aðferðin virkar þannig að myndaður er hringur með um það bil 10 manns.
Í miðju hringsins eru nokkur verkfæri:Kúla eða prik. Sá sem heldur á kúlunni eða prikinu á orðið.
Bjalla: slegið er á bjölluna þegar ferlið byrjar og endar.
Bjallan er einnig notuð þegar ferlið er ekki að ganga eins og skildi þá getur hver sem er slegið á bjölluna.
Blóm eða kerti eru sett í miðju hringsins svo að þátttakendur hafi eitthvað fallegt að horfa á meðan gagnræðurnar fara fram.

