Hvað er markþjálfun?
Markþjálfun er marksækið, árangursmiðað og kerfisbundið ferli þar sem einn einstaklingur auðveldar öðrum einstaklingi eða hópi að taka varanlegum framförum með því að hlúa að sjálfmiðuðu námi og persónulegum vexti þess sem er í þjálfun.
Markþjálfun er samband sem miðar að því að viðskiptavinurinn taki skref sem gera framtíðarsýn, markmið og óskir hans að veruleika.
Markþjálfi notar ferli spurninga sem hvetja til persónulegra uppgötvana og efla vitund og ábyrgð viðskiptavinarins. Hann kennir ákveðnar aðferðir og veitir viðskiptavini sínum stuðning og endurgjöf.
Markþjálfunarferlið ýtir undir að viðskiptavinurinn nái að skilgreina og ná markmiðum sínum á skjótan og áreynslulausan hátt.

