Markþjálfun fellst í því að virkja innsæið, finna stefnu, finna lausn á verkefnum lifsins, framkvæma drauma sína og finna aðferðina.
Öll höfum við eitthvað sem okkur langar að bæta hvort sem það er innan fjölskyldunnar, vinnunnar eða tengt áhugamálum. Markþjálfun snýst um að auka metnaðinn, virkja eldmóðinn og að fá skýrari hugsun.
Með markþjálfun fær einstaklingur stuðning frá markþjálfa sem hefur þjálfað sig í að hjálpa öðrum að finna sínar eigin lausnir og hefur ekki önnur markmið en þau að hjálpa viðskiptavini sínum. Markþjálfi vinnur ávallt í fullum trúnaði.
Almennur tími í markþjálfun er miðaður við 40-60 mínutur á hvern einstakling hverju sinni, en er þó hægt að smíða eftir þörfum hvers og eins.

