Markþjálfun gefur fólki tækifæri á að skoða sjálft sig, störf sín og hegðun í fullum trúnaði með aðila sem til þess hefur hlotið sérstaka þjálfun. Markþjálfun hentar vel fyrir fyrirtæki sem þurfa að aðlagast breyttum tímum og halda sterk áfram.
Markþjálfun er skipulögð aðferð til að mynda kraftmikil markmið, uppgötva framtíðarsýn og löngun til að ná settum markmiðum.
Með markþjálfun fá einstaklingar stuðning frá fólki sem hefur þjálfað sig í að hjálpa öðrum að finna sínar eigin lausnir, hefur ekki önnur markmið en þau að hjálpa viðskiptavini sínum, og vinnur í fullum trúnaði.
Markþjálfunaramningurer gerður í fyrsta tíma þar sem starfsmaður fyrirtækisins skrifar niður heildarmarkmiðin sín og hvernig hann getur mælt árangur sinn í lokin.
Markþjálfi: Ég hef markþjálfað yfir 300 tíma, er með skrifstofu í Síðumúla 35. Hef unnið í verkefnum með Evolvia m.a. markþjálfun stjórnenda og millistjórnenda hjá Norðurál. ÉG hef aðstoðað við kennslu í markþjálfunarnámi hjá Evolvia. Ég hef lokið prófi á vegum International Coach Federation og er með gráðuna ACC Associate Certified Coach og þar með réttindi til að kenna öðrum að verða markþjálfar.
Ég fer eftir siðareglum International Coach Federation, sem eru stærstu alþjóðlegu samtök Markþjálfa.

