Ný leið á SKYPE

Tilgangur námskeiðsins er að virkja starfsmenn fyrirtækja og einstaklinga í að leita lausna á þáttum í starfi sínu og lífi sem þeir vilja breyta og bæta, til þess að þeir nái hámarks árangri.

Dagskráin skiptist í þrjá hluta.

Byrjað verður með markþjálfun, þar sem hver og einn skilgreinir hvaða markmið hann vill setja sér og þær leiðir sem hann hyggst nota til að ná árangri.

Í öðrum hluta er unnið með aðferð sem kallast Óskaspjaldið. Óskaspjaldið  er leið til að gera framtíðarsýn þátttakenda sýnilega og halda uppi eldmóðinum.

Í síðasta hluta námskeiðsins verður farið í Bohm gagnræður. Þær ganga út á að þátttakendur tali  frá hjartanu um það sem þeir eru að upplifa hér og nú. Engum er þó skylt að tjá sig frekar en hann vill.

,,Ný leið er lifandi og hvetjandi námskeið sem gengur út á að kenna nýjar aðferðir í markmiðsetningu og mótun framtíðarsýnar. Námskeiðið hefur fengið góðar undirtektir og hjálpað bæði mér og öðrum.
Árangur er nú þegar orðin sýnilegur með ýmsum hætti þ.á.m. með góðri líðan og jákvæðari hugarfari.”

-Inga Birna Hákonardóttir kennari og háskólanemi í spænsku.