Ný leið

Tilgangur námskeiðsins er að virkja þátttakendur í að leita lausna á þáttum í lífi sínu sem þeir vilja breyta.

Dagskráin skiptist í þrjá hluta.
Byrjað verður með markþjálfun þar sem hver og einn skilgreinir hvaða markmið hann vill setja sér og þær leiðir sem hann hyggst nota til að ná árangri.
Því næst munum við gera Óskaspjald. Óskaspjaldið  er leið til að gera framtíðarsýn okkar sýnilega og munu þátttakendur taka það með sér heim.
Í síðasta hluta námskeiðsins verður farið í Bohm gagnræður. Þær ganga út á að þátttakendur tali  frá hjartanu um það sem þeir eru að upplifa hér og nú. Engum er þó skylt að tjá sig frekar en hann vill.

Endilega sendið inn fyrirspurnir hér fyrir neðan: