KONUR ..NÝTT Í SAUMAKLÚBBINN !
Nú ætlið þið að gera drauma ykkar og langanir sýnileg í vetur!!
ANRA mun kenna ykkur að taka stefnuna alla leið.
Galdurinn hér er ÓSKASPJALDIÐ þitt. Til að minna þig á að ALLT er hægt á hverjum degi!!
Annetta Ragnarsdóttir kemur í saumaklúbbinn þinn, í 1 til 1 og 1/2 klukkustund og aðstoðar ykkur við að gera ykkar eigin óskaspjald. Vinnan fer þannig fram að hver og ein setur niður drauma sína og ásetning á örk sem síðan er tekin með sér heim.
Það eina sem Annetta þarf frá ykkur er fæðingardagurinn til þess að reikna út svokallaða Kúa tölu út frá Feng Shui hugmyndafræðinni. Annetta mun síðan aðstoða ykkur við uppsetningu á óskaspjaldinu eftir höfuðáttunum.
Þetta er skemmtileg kvöldstund og reynsla margra kvenna sem hafa tekið þátt er að vinnan hafi skilið eftir sig nýja sýn á lífið og umhverfi sitt.

