Ég, Annetta Ragnarsdóttir er fædd í Þórshöfn í Færeyjum þann 5.ágúst 1978 en fluttist með foreldrum mínum til Íslands skömmu síðar.
Ég hef alltaf haft áhuga á andlegum þroska og bættum leiðum í samskiptum.
Vorið 2008 náði markþjálfun athygli minni, ég heillaðist strax og ákvað að mennta mig í faginu. Fyrir mér er markþjálfunin ekki bara mögnuð aðferð til að bæta og þroska mannleg samskipti heldur líka máttugt verkfæri fyrir okkur til þess að komast að því hvað við raunverulega viljum og hjálpa okkur að koma okkur á þá braut.
Í mínu daglega lífi nota ég markþjálfun á sjálfa mig og þannig finn ég ávallt lausnir á þeim verkefnum sem ég þarf að eiga við sama hversu stór eða smá þau eru.
Fljótlega eftir að ég kynntist markþjálfun og fór að tileinka mér aðferðafræðina fann ég fljótlega að þetta var eitthvað sem ég vildi deila með öðrum.
Það lá því beinast við að fara sjálfstæðu leiðina og úr var að ég stofnaði Anra.
Fyrir mér er Anra ekki bara fyrirtæki heldur sú braut sem ég hef kosið mér að fara með líf mitt í þeirri trú að það verði mér og öðrum til góðs og árangurs.
Ég hef markþjálfað yfir 300 tíma, er með skrifstofu í Síðumúla 35. Hef unnið í verkefnum með Evolvia m.a. markþjálfun stjórnenda og millistjórnenda hjá Norðurál. ÉG hef aðstoðað við kennslu í markþjálfunarnámi hjá Evolvia. Ég hef lokið prófi á vegum International Coach Federation og er með gráðuna ACC Associate Certified Coach og þar með réttindi til að kenna öðrum að verða markþjálfar.
Ég fer eftir siðareglum International Coach Federation, sem eru stærstu alþjóðlegu samtök Markþjálfa.


